Prentað þann 29. mars 2025
962/2012
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 911/2011 um garnaveiki og varnir gegn henni.
1. gr.
1. tölul. í viðauka I orðast svo: Á Suðvesturlandi og Vesturlandi frá Markarfljóti að Hvammsfjarðarlínu úr Hvammsfirði í Hrútafjörð. Ekki er þó skylt að bólusetja á fjárskiptabæjum í Biskupstungum eða í Vestmannaeyjum.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 29. gr. laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993 og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. nóvember 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Kristinn Hugason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.