1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 289/2014 frá 21. mars 2014 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir foramsúlfúrón, asímsúlfúrón, joðsúlfúrón, oxasúlfúrón, mesósúlfúrón, flasasúlfúrón, ímasósúlfúrón, própamókarb, bífenasat, klórprófam og þíóbenkarb í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 212/2014, frá 1. nóvember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73, frá 4. desember 2014, bls. 272.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 318/2014 frá 27. mars 2014 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir fenarímól, metaflúmísón og teflúbensúrón í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 212/2014, frá 1. nóvember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73, frá 4. desember 2014, bls. 307.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 364/2014 frá 4. apríl 2014 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir fenpýroxímat, flúbendíamíð, ísópýrasam, kresoxímmetýl, spírótetramat og þíaklópríð í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 212/2014, frá 1. nóvember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73, frá 4. desember 2014, bls. 337.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 398/2014 frá 22. apríl 2014 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir benþíavalíkarb, sýasófamíð, sýhalófópbútýl, forklórfenúrón, pýmetrósín og silþíófam í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 212/2014, frá 1. nóvember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73, frá 4. desember 2014, bls. 371.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 491/2014 frá 5. maí 2014 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir ametóktradín, asoxýstróbín, sýkloxýdím, sýflútrín, dínótefúran, fenbúkónasól, fenvalerat, flúdíoxóníl, flúópýram, flútríafól, flúxapýroxað, glúfosínatammóníum, imídaklópríð, indoxakarb, MCPA, metoxýfenósíð, penþíópýrað, spínetóram og trífloxýstróbín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 257/2014, frá 13. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 5. febrúar 2014, bls. 214.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 588/2014 frá 2. júní 2014 um breytingu á III. og IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir appelsínuolíu, Phlebiopsis gigantea, gibberellsýru, Paecilomyces fumosoroseus af stofni FE 9901, Spodoptera littoralis-kjarnmargflötungaveiru, Spodoptera exigua-kjarnmargflötungaveiru, Bacillus firmus I-1582, S-absísínsýru, L-askorbínsýru og Helicoverpa armigerakjarnmargflötungaveiru í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 257/2014, frá 13. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 5. febrúar 2015, bls. 305.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 617/2014 frá 3. júní 2014 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir etoxýsúlfúrón, metsúlfúrónmetýl, níkósúlfúrón, prósúlfúrón, rimsúlfúrón, súlfósúlfúrón og þífensúlfúrónmetýl í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 257/2014, frá 13. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 5. febrúar 2015, bls. 307.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 703/2014 frá 19. júní 2014 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asíbensólar-S-metýl, etoxýkín, flúsílasól, ísoxaflútól, mólínat, própoxýkarbasón, pýraflúfenetýl, kínóklamín og varfarín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 257/2014, frá 13. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 5. febrúar 2015, bls. 347.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 737/2014 frá 24. júní 2014 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir 2-fenýlfenól, klórmekvat, sýflúfenamíð, sýflútrín, díkamba, flúópíkólíð, flútríafól, fosetýl, indoxakarb, ísópróþíólan, mandíprópamíð, metaldehýð, metkónasól, fosmet, píklóram, própýsamíð, pýriproxýfen, saflúfenasíl, spínósað og trífloxýstróbín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 257/2014, frá 13. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 5. febrúar 2015, bls. 395.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.