Prentað þann 29. mars 2025
866/2010
Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 200/1998 um búfjármörk, markaskrár og takmörkun á sammerkingum búfjár, með áorðnum breytingum.
1. gr.
4. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í markaskrá skal birta skrá yfir númer bæja eða eigenda í hverju sveitarfélagi og litakort sem sýnir svæðaskiptingu merkilita.
2. gr.
14. gr., viðauki I og viðauki II við reglugerðina falla brott.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í IX. kafla laga nr. 6/1986 um afréttamálefni, fjallskil o.fl. og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. október 2010.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Arnór Snæbjörnsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.