Prentað þann 29. mars 2025
171/2012
Reglugerð um synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingu.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 984/2009 um synjun leyfis fyrir tilteknum heilsufullyrðingum er varða matvæli og vísa hvorki til minnkunar á sjúkdómsáhættu né til þroskunar og heilbrigðis barna. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2011, frá 1. nóvember 2011. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 2. febrúar 2012, bls. 162.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 375/2010 um synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingu er varðar matvæli og vísar hvorki til minnkunar á sjúkdómsáhættu né til þroskunar og heilbrigðis barna. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2011, frá 1. nóvember 2011. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 2. febrúar 2012, bls. 193.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 382/2010 um synjun leyfis fyrir tilteknum heilsufullyrðingum er varða matvæli og vísa hvorki til minnkunar á sjúkdómsáhættu né til þroskunar og heilbrigðis barna. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2011, frá 1. nóvember 2011. Reglugerðin er birt EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 2. febrúar 2012, bls. 193.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 383/2010 um synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingu er varða matvæli og vísar hvorki til minnkunar á sjúkdómsáhættu né til þroskunar og heilbrigðis barna. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2011, frá 1. nóvember 2011. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 2. febrúar 2012, bls. 200.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
5. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. febrúar 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Indriði B. Ármannsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.