Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

989/2005

Hafnarreglugerð fyrir hafnir Vesturbyggðar.

1. gr. Stærð og takmörkun hafnanna.

Hafnir Vesturbyggðar eru: Patrekshöfn, Bíldudalshöfn, Brjánslækjarhöfn og Örlygshöfn.

Stærð og takmörkun hafnarsvæðis Patrekshafnar eru:

Á sjó: Patrekshöfn takmarkast annars vegar af strandlengjunni á milli Yxnhamars og Þúfneyrarodda og hins vegar af miðjum Patreksfirði, undan sömu stöðum. Höfnin skiptist í ytri og innri höfn. Ytri höfn telst allt hafnarsvæðið utan við innsiglingarrennuna að Patrekshöfn, þó er undanskilin strandlengjan frá austurhorni rennunnar inn fyrir Vatneyri samkvæmt nánari lýsingu. Innri höfn telst allt hafnarsvæðið innan ytri marka á innsiglingarrennunni að Patrekshöfn og strandlengjan frá austurhorni rennunnar austur fyrir Vatneyri að línu sem hugsast dregin austur með syðri brún Eyrargötu til sjávar.

Á landi: Land Patrekshafnar markast af eftirfarandi línum: Línu sem hugsast dregin til sjávar samsíða ytri mörkum lóðarinnar nr. 1 við Mýrargötu. Línu sem hugsast dregin meðfram neðri lóðamörkum íbúabyggðar við Mýrargötu frá lóðinni nr. 1 að efri og innri mörkum lóðarinnar nr. 8 við Þórsgötu. Línu sem fylgir innri mörkum sömu lóðar að Þórsgötu og þaðan meðfram efri jaðri hennar að suðurbrún Túngötu. Línu sem hugsast dregin samsíða suðausturjaðri þeirrar götu að Eyrargötu og þaðan austur með henni til sjávar innan við Vatneyri.

Stærð og takmörkun hafnarsvæðis fyrir Bíldudalshöfn eru:

Á sjó: Bíldudalshöfn takmarkast af línu sem hugsast dregin frá Haganestá að Jaðarshlein. Innan nefndrar línu takmarkast hún af landinu alla vegu meðfram vognum, nema á þeim stöðum sem lýst er í mörkum á landi.

Á landi: Land Bíldudalshafnar markast af eftirfarandi línum: Línu sem hugsast dregin frá Jaðarshlein með neðri kanti Tjarnarbrautar að fremri kanti Hafnarteigs að efri kanti Hafnarbrautar fram að hafnargarði framanverðum.

Stærð og takmörkun hafnarsvæðis Brjánslækjarhafnar eru:

Á sjó: Sjávarlína að austan nær um 1 km frá ströndinni.

Á landi: Hafnarsvæði Brjánslækjarhafnar takmarkast af eftirtöldum línum: Lína hugsast dregin samsíða þjóðvegi, 50 metrum neðan miðlínu vegar og eru þetta efri eða vestari mörk hafnarsvæðisins. Að norðan afmarkast svæðið af línu sem hugsast dregin samsíða vegi er nær frá þjóðvegi niður að ferjubryggju, 100 metrum norðan miðlínu. Þessi lína gengur í sjó fram u.þ.b. miðja vegu milli Þrælavogs og Innri Grundartanga. Að sunnan afmarkast hafnarsvæðið af línu sem hugsast dregin í sjó fram miðja vegu milli Heyness (Ytri Grundartanga) og Hrófsness um svokallaðan Ós. Inni á hafnarsvæðinu eru hinar svonefndu Flókatóftir sem eru friðlýstar.

Stærð og takmörkun hafnarsvæðis fyrir Örlygshöfn eru:

Á sjó: Sjávarlína er um 1 km frá strönd, fram af neðangreindum örnefnum.

Á landi: Frá landamerkjum Sellátraness að utanverðu, við svokallaðan Míganda að landamerkjum Vatnsdals, við Múlahlein að innanverðu. Takmörk hafnasvæðis á landi eru 100 m í báðar áttir frá bryggju og þaðan stystu leið til sjávar, efri mörk með neðri brún þjóðvegar.

Landsvæði hafnanna skiptast í:
- Hafnarbakka og bryggjur.
- Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði.
- Götur.
- Lóðir, iðnaðar- og baksvæði.

2. gr. Stjórn hafnanna.

Vesturbyggð er eigandi hafnanna. Bæjarstjórn fer með yfirstjórn hafnamála, en framkvæmdastjórn skal falin hafnarstjórn og hafnarstjóra.

Hafnarstjórn er kjörin af bæjarstjórn samkvæmt þeim reglum er gilda um kjör fastra nefnda bæjarstjórnar. Hafnarstjórn skipa 3 fulltrúar og 3 til vara og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Vesturbyggðar kýs formann úr hópi kjörinna hafnarstjórnarmanna. Hafnarstjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Auk hinna kjörnu fulltrúa skal hafnarstjóri sitja fundi hafnarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt.

3. gr. Starf- og valdsvið hafnarstjórnar.

Hafnarstjórn hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnanna. Leita skal staðfestingar bæjarstjórnar á fjárhagsáætlun hafnarsjóðs svo og lántökum hafnarsjóðs lengur en yfirstandandi fjárhagsár.

Hafnarstjórn hefur ákvörðunarvald um rekstur hafnanna, svo sem ráðstöfun á aðstöðu, þ.m.t. leigu á húsnæði í eigu hafnanna og landi í eigu þeirra.

Hafnarstjórn veitir leyfi til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæðis fyrir starfsemi sem hún telur torvelda eðlilegri hafnarstarfsemi.

Hafnarstjórn gerir tillögur til bæjarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðum, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulagsnefndar. Byggingarmál á hafnarsvæðum skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar áður en þau eru lögð fyrir bæjarstjórn.

4. gr. Starfs- og valdsvið hafnarstjóra.

Hafnarstjóri er skipaður af hafnarstjórn og fer hann með daglega stjórn hafnanna í umboði hafnarstjórnar. Hafnarstjóri undirbýr mál sem leggja á fyrir hafnarstjórn, veitir viðtöku erindum til hennar og sér um framkvæmd samþykkta hafnarstjórnar. Hann veitir hafnarstjórn og bæjarstjórn upplýsingar um málefni hafnanna. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs. Hann er yfirmaður allra starfsmanna hafnanna og sér um ráðningu þeirra og uppsögn.

Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnareglugerða, auk reglugerðar þessarar og fara að öðru leyti eftir samþykktum hafnarstjórnar og bæjarstjórnar.

Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu á öllum hafnarsvæðum, hvort sem er á sjó eða landi. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans, eða þeirra sem hann felur störf við eftirlit og aðgæslu.

5. gr. Um aðra starfsmenn hafnanna.

Hafnarstarfsmenn sem hafa umsjón með eignum hafnanna, gæta reglu og sinna skipaþjónustu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar.

Starfsmenn hafnanna skulu gæta allrar kurteisi í starfi en skipunum starfsmanna ber að hlýða þegar í stað. Telji einhver sig órétti beittan af hálfu starfsmanna hafnanna getur hann kært það til hafnarstjóra.

6. gr. Hafnsaga og önnur þjónusta við skip.

Sérhvert skip, sem ætlar til einhverrar af höfnum Vesturbyggðar og óskar eftir hafnsögu, skal gera boð um það til viðkomandi hafnar með minnst 4 klukkustunda fyrirvara. Er hafnsögumanni skylt að fara til móts við skipið allt að 2,5 sjómílur út fyrir ystu mörk viðkomandi hafnar, ef skipstjóri æskir þess.

Hafnsögumaður vísar skipinu leið til hafnar og má eigi yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er komið í viðlegu. Heimilt er hafnsögumanni meðan hann hefur ekki lokið starfi sínu að banna hverjum þeim sem ekki á lögmætt erindi að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð ber skipinu að sjá honum fyrir fæði.

Höfnin sér um bindingu skipa, sölu og afgreiðslu vatns og rafmagns. Hafnsögumaður ákveður notkun báta og mannafla eftir aðstæðum hverju sinni.

7. gr. Löggæsla á hafnarsvæði.

Lögreglan í umdæmi sýslumannsins á Patreksfirði hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðum.

Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga á hafnarsvæði er bannað að dvelja þar ef þeir með því tálma lestun, losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers konar ökutækja og ónauðsynlega umferð gangandi fólks um bryggjur, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði á hafnarsvæðum. Fólk sem fer um hafnarsvæði er þar ávallt á eigin áhættu og ábyrgð.

Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við hafnirnar eða á þeim. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðum án leyfis.

Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðum án leyfis hafnarstjóra. Fiskveiðar á hafnarsvæðum mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfærum á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri bótalaust.

Hafnarstjóra skal þegar í stað tilkynnt um það sem bjargað er í höfn en hann gefur lögreglunni skýrslu, telji hann þess þörf.

8. gr. Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það, að áliti hafnarstjóra, tálmar greiðri notkun hafnar, skal það fært burt svo fljótt sem auðið er af eiganda, umáðamanni eða öðrum sem málið varðar. Verði dráttur á því, má hafnarstjóri láta færa skipið burt á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og skal það flutt á öruggan stað, að vali og eftir mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi skip, til lúkningar á kostnaði, á hvern þann hátt sem hagkvæmast þykir, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja skipið tafarlaust. Sala fari fram á kostnað og ábyrgð eiganda og/eða umráðamanns skips.

Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjóra.

Ef skip, bátar, bryggjur, flutningstæki á landi eða annar búnaður, í eigu annarra en hafnarinnar, er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu, þá skal hafnarstjóri fyrirskipa eiganda og/eða umráðamanni að gera nauðsynlegar úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hlut á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og koma fyrir í geymslu á öruggum stað, eftir vali eða mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi hlut á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir til lúkningar á kostnaði, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja hlutinn tafarlaust. Sala fari fram á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns.

9. gr. Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

Engum úrgangi eða rusli má kasta í hafnir eða ytri hafnir Vesturbyggðar.

Bannaður er hvers konar hvalskurður í eða við hafnirnar. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt, inn í hafnirnar, hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfninni nema leyfi hafnarstjóra komi til.

Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíu, lýsi, olíusora eða öðru sem valdið getur mengun.

Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir til að eldsneyti renni ekki í sjóinn af þilfari ef óhapp verður við eldsneytistökuna. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa, að mati hafnarstarfsmanna, gert tilhlýðilegar ráðstafanir til varnar mengun.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma.

10. gr. Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

Allir þeir sem óska eftir afgreiðslu fyrir skip, láni á tækjum eða þjónustu á einn eða annan hátt hjá höfnunum, skulu snúa sér beint til starfsmanna hafnanna með beiðni þar að lútandi.

Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um þjónustu sem eru í vanskilum með gjöld til hafnanna og hafa ekki sinnt ítrekuðum áskorunum um greiðslu gjaldfallinna gjalda. Í slíkri áskorun skal geta um þær afleiðingar af vanskilum sem koma fram í 1. málslið greinarinnar.

Sé talin ástæða til getur hafnarstjóri farið fram á að viðskiptavinir leggi fram tryggingu fyrir greiðslu hafnargjalda.

11. gr. Hverjum skal gefa fyrirmæli.

Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skulu gefin skipstjóra en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi. Ef stýrimaður er einnig fjarverandi má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipanir og er það jafngilt sem skipstjóri hefði sjálfur tekið við skipunum.

12. gr. Um skaðabótaskyldu.

Um skaðabótaskyldu þeirra sem leið eiga um höfn og hafnarsvæði, vegna skemmda á höfn, mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum skaðabótareglum.

Ef ekki næst samkomulag um fjárhæð skaðabóta skulu þær ákveðnar með mati tveggja dómkvaddra matsmanna, sem tilkvaddir eru af héraðsdómi Vestfjarða. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að óska dómkvaðningar samkvæmt þessari grein. Kostnaður af mati greiðist að jöfnu.

Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, innan mánaðar frá því að matsgerð samkvæmt 2. mgr. liggur fyrir og hefur verið kynnt aðilum. Til yfirmats skal dómkveðja þrjá matsmenn. Kostnaður við yfirmat greiðist af þeim sem þess krafðist, nema það sé honum í vil, þá skal kostnaður greiðast að jöfnu.

Niðurstaða dómkvaddra matsmanna, hvort sem er samkvæmt 2. eða 3. mgr., skal vera endanleg niðurstaða um bótafjárhæð.

13. gr. Kæruheimild.

Notendum hafna Vesturbyggðar er heimilt að skjóta ákvörðunum hafnarstjórnar samkvæmt reglugerð þessari, öðrum en gjaldskrárákvörðunum, til Siglingastofnunar Íslands. Ákvörðun Siglingastofnunar má skjóta til samgönguráðherra. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.

14. gr. Brot.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Um mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.

15. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. grein hafnalaga nr. 61/2003 og 17. grein laga nr. 41/2003 um vaktstöð siglinga, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Vesturbyggð nr. 336/1997.

Samgönguráðuneytinu, 27. október 2005.

Sturla Böðvarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.