1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 10b í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2004, frá 3. desember 2004, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1725/2003 frá 29. september 2003 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1725/2003 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2004, sbr. 1. gr. sem birt hefur verið í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 26, dags. 26. maí 2005, bls. 22, er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi og skal gilda fyrir hvert það reikningsár sem hefst 1. janúar 2005 eða síðar.
Fjármálaráðuneytinu, 27. janúar 2006.
F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Elmar Hallgríms.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)