Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 19. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 9. sept. 2022

541/2001

Reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna sölu hópbifreiða úr landi.

1. gr. Gildissvið.

Eftir ákvæðum reglugerðar þessarar skal endurgreiða rekstraraðilum hópbifreiða, sem undanþegnir eru virðisaukaskatti skv. 6. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, 19,35% af söluverði hópbifreiða sem þeir sannanlega selja úr landi, sbr. þó 2. mgr. Hafi hópbifreiðin verið nýtt í blandaðri starfsemi og virðisaukaskattur af kaupverði hennar að hluta til verið færður til innskatts lækkar endurgreiðslan sem því hlutfalli nemur.

Endurgreiða skal rekstraraðilum hópbifreiða, sem undanþegnir eru virðisaukaskatti skv. 6. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, 6,45% af söluverði hópbifreiða sem þeir sannanlega selja úr landi. Endurgreiðsla samkvæmt þessu ákvæði tekur til rekstraraðila þeirra hópbifreiða sem nýskráðar voru á tímabilinu 1. september 2000 til 31. desember 2003 og notið hafa endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. lögum nr. 57/2001, um breyting á lögum um virðisaukaskatt nr. 50/1988, vegna sömu bifreiða. Hafi hópbifreiðin verið nýtt í blandaðri starfsemi og virðisaukaskattur af kaupverði hennar að hluta til verið færður til innskatts lækkar endurgreiðslan sem því hlutfalli nemur.

2. gr. Endurgreiðslubeiðni.

Sækja skal um endurgreiðslu á sérstöku eyðublaði í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.

Réttur til endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari fellur niður ef umsókn um endurgreiðslu berst tollstjóra eftir að sex ár eru liðin frá því að réttur til endurgreiðslu stofnaðist.

3. gr. Afgreiðsla á umsóknum og skilyrði endurgreiðslu.

Ríkisskattstjóri afgreiðir beiðnir um endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari og annast endurgreiðslu.

Skilyrði endurgreiðslu er að í beiðni um endurgreiðslu sé sýnt fram á með fullnægjandi hætti að mati ríkisskattstjóra að hópbifreiðin hafi verið seld úr landi.

Til að sannreyna fjárhæðir á endurgreiðslubeiðni getur ríkisskattstjóri krafið umsækjanda nánari skýringa á viðskiptunum.. Með beiðni um endurgreiðslu skal fylgja frumrit sölureiknings eða greiðsluskjal frá tollyfirvöldum þar sem fram kemur söluverð hópbifreiðar með áritaðri staðfestingu tollgæslunnar á því að hópbifreið samkvæmt reikningnum hafi verið seld úr landi.

4. gr.

Röng skýrslugjöf eða framlagning rangra eða villandi gagna, svo og röng upplýsingagjöf látin í té í því skyni að fá endurgreiðslu á virðisaukaskatti samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar, varðar við 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 6. gr. laga nr. 105/2000, um breyting á lögum um virðisaukaskatt nr. 50/1988, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.