Fjármálaráðuneyti

305/1996

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 470/1991, um endurgreiðslu virðisaukaskatts til sendimanna erlendra ríkja, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

                Eftirfarandi breyting verður á 1. gr. reglugerðarinnar:

                Við 3. mgr. bætast tveir nýir málsliðir er orðast svo: Jafnframt skal endurgreiða virðisaukaskatt af leigugjaldi sem greitt er fyrir notkun á húsnæði sem er embættisbústaður sendiherra eða skrifstofuhúsnæði sendiráðs. Þó skal ekki endurgreiða virðisaukaskatt vegna þjónustu sem tengist rekstri húseignarinnar.

 

2. gr.

                Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 43. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Fjármálaráðuneytinu, 30. maí 1996.

 

F. h. r.

Guðrún Ásta Sigurðardóttir.

Hermann Jónasson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica