|
|
581/2005
felld brott með rg. nr. 1138/2007
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins
um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu, nr. 739/2004.
1. gr. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1644/2003 frá 22. júlí 2003 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1406/2002 um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu, sem vísað er til í 56o í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 40/2004 frá 23. apríl 2004 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans.
2. gr. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 40/2004, sbr. 1. gr., hefur verið birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 43, dags. 26. ágúst 2004 (bls. 8). Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1644/2003 er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari og verður hluti af henni.
3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga um Siglingastofnun Íslands, nr. 6/1996, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Samgönguráðuneytinu, 3. júní 2005.
Sturla Böðvarsson. Ragnhildur Hjaltadóttir.
Stofnreglugerð: 739/2004 - Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu.
|