Prófnefnd verðbréfaviðskipta hefur umsjón með prófi í verðbréfaviðskiptum samkvæmt 53. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Próf þetta nefnist verðbréfaviðskiptapróf. Starfsmenn fjármálafyrirtækis, sem hafa umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti með fjármálagerninga skv. 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um fjármálafyrirtæki, skulu hafa staðist próf í verðbréfaviðskiptum.
Viðskiptaráðherra skipar prófnefnd til fjögurra ára í senn. Í henni eiga sæti fimm menn. Tveir skulu tilnefndir af samstarfsnefnd háskólastigsins, sbr. nú 24. gr. laga um háskóla nr. 136/1997, þar af skal annar vera í fullu og föstu starfi hjá viðskiptadeild háskóla sem hefur leyfi til að útskrifa viðskiptafræðinga og hinn vera í fullu og föstu starfi hjá lagadeild háskóla sem hefur leyfi til að útskrifa lögfræðinga sem njóta undanþágu frá 1. hluta prófs í verðbréfaviðskiptum. Einn nefndarmaður í prófnefnd verðbréfaviðskipta skal tilnefndur af Samtökum banka- og verðbréfafyrirtækja og einn skal tilnefndur sameiginlega af kauphöllum og skipulegum tilboðsmörkuðum skv. lögum nr. 34/1998. Einn skal skipa án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Varamenn skal skipa með sama hætti.
Ákvarðanir prófnefndar eru endanlegar á stjórnsýslustigi.
Próf skulu að jafnaði haldin eigi sjaldnar en einu sinni á ári. Eigi er skylt að standa fyrir prófi nema a. m. k. 10 þátttakendur hafi skráð sig í próf. Prófnefnd ákveður fjölda prófa. Próf skulu að jafnaði vera skrifleg. Próf skulu auglýst í fjölmiðlum með a.m.k. átta vikna fyrirvara. Í auglýsingu skal koma fram hvar og hvenær próf eru haldin, tímalengd þeirra, hvaða hjálpargögn eru leyfileg og hvaða lágmarkseinkunna er krafist. Í auglýsingunni skal einnig koma fram hvar upplýsingar um prófkröfur og prófsefni er að finna.
Ekki er skylt að halda sérstakt sjúkra- eða upptökupróf í tengslum við próf samkvæmt 1. mgr.
Ráðherra ákveður prófgjöld að fenginni tillögu prófnefndar og skal greiða þau fyrir þau tímamörk sem prófnefnd ákveður. Upplýsingar um fjárhæð prófgjalda skulu liggja fyrir í síðasta lagi 2 vikum fyrir próf.
Prófnefnd tekur ákvörðun um efni sem prófað er úr á verðbréfaviðskiptaprófi. Prófnefnd semur prófsefnislýsingu í viðkomandi grein og skal hún liggja fyrir á heimasíðu viðskiptaráðuneytisins þegar próf er auglýst skv. 1. mgr. 2. gr.
Verðbréfaviðskiptapróf skiptist í þrjá hluta, I. hluta, almenna lögfræði, II. hluta, almenna viðskiptafræði og III. hluta, fjármagnsmarkaðinn. Við ákvörðun skv. 1. mgr. skal prófnefnd leggja til grundvallar að efni hvers hluta krefjist þekkingar á eftirtöldum sviðum:
I. hluti:
1. | Íslenskri réttarskipun og evrópurétti, fræðikerfi lögfræðinnar, ábyrgðum og ágripi úr réttarfari. |
2. | Viðfangsefnum úr fjármunarétti og félagarétti. |
3. | Viðskiptabréfareglum, veðréttindum og þinglýsingum. |
II. hluti:
1. | Grunnatriðum í fjármálafræði. |
2. | Fjármagnsmarkaði (grunnatriðum úr þjóðhagfræði). |
3. | Greiningu ársreikninga. |
III. hluti:
1. | Lögum og reglum um fjármagnsmarkaðinn. |
2. | Markaðsviðskiptum og viðskiptaháttum. |
3. | Helstu gerðum verðbréfa og gjaldeyri. |
4. | Fjárfestingarferlinu (samval verðbréfa, sjóðastjórnun, ráðgjöf, skattamál). |
Prófnefnd er heimilt að fengnu samþykki viðskiptaráðherra að gera breytingar á þeim sviðum sem tilgreind eru í 2. mgr.
Öllum er heimilt að skrá sig til verðbréfaviðskiptaprófs.
Þeir sem lokið hafa prófi í lögfræði sem metið er fullnægjandi að lögum til að öðlast héraðsdómslögmannsréttindi, sbr. nú 4. tölul. 1. mgr. 6. gr. laga um lögmenn nr. 77/1998, eru undanþegnir töku prófa í I. hluta skv. 2. mgr. 3. gr. Þeir sem hafa rétt að lögum til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga eru undanþegnir töku prófa í II. hluta skv. 2. mgr. 3. gr.
Prófnefnd getur veitt próftaka, sem um það sækir, undanþágu frá því að þreyta próf í einstökum greinum í I. og II. hluta prófs í verðbréfaviðskiptum. Skilyrði þess að slíka undanþágu megi veita er að próftaki sýni fram á það með fullnægjandi hætti, með vottorði frá viðkomandi menntastofnun og öðrum þeim gögnum sem prófnefnd kann að óska eftir, að hann hafi staðist sambærileg próf á háskólastigi að mati prófnefndar. Prófnefnd er heimilt að vísa umsókn frá berist hún síðar en einum mánuði fyrir próf sem óskað er undanþágu frá. Ekki eru veittar undanþágur frá prófum í III. hluta prófs í verðbréfaviðskiptum.
Þeir sem lokið hafa prófi á Evrópska efnahagssvæðinu sem krafist er í viðkomandi ríki til að vera heimilt að hafa umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti með fjármálagerninga, þurfa einungis að taka próf í lögum og reglum á fjármagnsmarkaði á III. hluta prófs í verðbréfaviðskiptum til þess að fá útgefið skírteini um próf í verðbréfaviðskiptum, sbr. tilskipun ráðsins 92/51/EBE frá 18. júní 2002 um annað almennt kerfi til viðurkenningar á starfsmenntun og starfsþjálfun til viðbótar tilskipun 89/48/EBE og 2. gr. laga um viðurkenningu á menntun og prófskírteinum nr. 83/1993.
Einkunnir á prófum skulu gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0-10. Til þess að standast verðbréfaviðskiptapróf þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr þeim prófum er hann hefur þreytt. Próftaki telst ekki hafa staðist einstök próf hljóti hann lægri einkunn en 5,0.
Próftaki á rétt á að sjá prófúrlausn sína ef hann æskir þess innan fimmtán daga frá birtingu einkunnar. Próftaka er heimilt að skjóta mati kennara á úrlausn sinni til prófnefndar til endurmats innan tveggja mánaða frá birtingu einkunnar. Prófnefnd getur skipað prófdómara til að endurskoða úrlausn próftaka á ábyrgð prófnefndar.
Ákvörðun prófnefndar um úrlausn er endanleg.
Til þess að standast verðbréfaviðskiptapróf skal próftaki hafa lokið öllum nauðsynlegum prófum með fullnægjandi árangri innan þriggja ára frá því hann tók fyrsta prófið.
Prófnefnd staðfestir að próftaki hafi staðist verðbréfaviðskiptaprófið.
Prófnefnd er heimilt að fela óháðum aðilum að semja próflýsingu í viðkomandi grein, semja prófverkefni, fara yfir og gefa einkunn fyrir prófúrlausn. Þá er prófnefnd heimilt að semja við óháðan aðila um framkvæmd prófa.
Nú er ekki boðið upp á námskeið í verðbréfaviðskiptum og er prófnefnd verðbréfaviðskipta þá heimilt að standa fyrir námskeiði í einstökum greinum til undirbúnings verðbréfaviðskiptaprófi. Í slíkum tilfellum er prófnefnd heimilt að semja við aðra aðila um að halda námskeið samkvæmt þessari málsgrein. Gjöld fyrir námskeiðin skulu þá ákveðin af ráðherra að fenginni tillögu prófnefndar, nema samningar takist við framkvæmdaraðila um að hann beri fjárhagslega ábyrgð á námskeiðinu.
Prófnefnd er heimilt að ráða sér starfsmann til að hafa umsjón með undirbúningi og framkvæmd prófa og námskeiða skv. 2. mgr. 6. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 53. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 506/2000 um próf í verðbréfamiðlun.